Kannski bestu fréttir úr flugheimum lengi. Bandaríska flugfélagið JetBlue skoðar nú mögulegan eignarhlut í lággjaldaflugfélaginu Norwegian en hið síðarnefnda hefur barist í bökkum undanfarin misseri.

Fengur ef Norwegian tekst að fá JetBlue til liðs við sig.
Ferðaglaðir Íslendingar ekki farið varhluta af veseni þeirra norsku. Þeir hafa fellt niður fjölda flugferða til og frá Íslandi og þar á meðal til áfangastaða sem ekki er auðvelt að komast til með öðrum hætti. Það hefur Norwegian gert mun víðar en hérlendis auðvitað en reksturinn samt í járnum.
JetBlue er án vafa eitt allra besta flugfélag Bandaríkjanna og eitt fárra sem ekki þjösnast á farþegum sínum með sætum sem eru þrengri en nálarauga eða sker þjónustu við kviku á nögl.
Þetta gæti því verið hjónaband frá himnaríki ef fregnir Times eru réttar.







