Tíðindi

Sofandaháttur flugumferðarstjóra

  15/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Ólíkt því sem gerist í Bandaríkjunum fá Íslendingar engar upplýsingar um hvort flugumferðarstjórar hérlendis hafi nokkurn tíma fengið reisupassann fyrir að sofna í vinnunni. Þetta fékk Fararheill.is staðfest formlega.

Í kjölfar fregna þess efnis að vestur í Bandaríkjunum væri það töluvert vandamál í flugumferðarstjórn hversu margir einstaklingar sofnuðu á vakt sinni með tilheyrandi hættu fyrir flugfarþega óskaði Fararheill eftir upplýsingum um slíkt hérlendis.

Fyrstu svör Isavia voru á þá leið að slíkt yrði ekki gefið upp og er það nú staðfest formlega. Segir í svari stofnunarinnar, sem fer með stjórn flugumferðarstjóra, að vissulega hafi verið uppsagnir síðustu árin hjá flugumferðarstjórum eins og öðrum hjá stofnuninni en ástæður þeirra uppsagna verði ekki gefnar upp.

Segir þó að hefðbundin vinnuskylda flugumferðarstjóra hérlendis séu 38 stundir á viku en sé um yfirvinnu að ræða fer vinnutíminn þó aldrei yfir 48 stundir. Allt að sex flugumferðarstjórar eru á vakt hverju sinni á Keflavíkurflugvelli og ekki færri en fjórir á næturnar.