Forstjóri Icelandair Group hefur engar sérstakar áhyggjur af samkeppni við Iceland Express að því er fram kemur í nýju viðtali.
Er Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, í viðtali á vefmiðlinum Eyjunni þar sem hann ræðir stuttlega samkeppnina við Iceland Express sem er eina flugfélagið sem hingað flýgur reglulega fyrir utan Icelandair.
Björgólfur segir Icelandair ekki upptekið af þeirri samkeppni en viðurkennir að samkeppni sé af hinu góða bæði fyrir neytendur og flugfélagið sjálft.
Björgólfur er ekki spurður út í mánaðarlaun sín sem voru 3,3 milljónir króna á síðasta ári en launakostnaður sex æðstu stjórnenda Icelandair Group 2010 námu alls 140 milljónum króna. Fyrirtækið er gegnum lífeyrissjóðina að hluta til í eigu landsmanna.






