Tíðindi

Kosovó og Bangladesh á kort ferðamanna

  20/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Hætt er við að vinir og ættingjar stingi upp á langtíma sálfræðimeðferð detti einhverjum í hug að eyða sumarfríinu í Kosovó á Balkanskaganum. Ekki síður þætti almennt undarlegt að eyða því leyfi í Bangladesh.

Það helgast vitaskuld af því að bæði þessu lönd, þó Kosovó sé aðeins að hluta viðurkennt sem land, eru þekktari fyrir öllu verri hluti gegnum tíðina en ferðamenn. Kosovó var fyrir tæpum 20 árum vettvangur mikilla stríðsátaka og fátækt og flóð eru mun þekktari hluti af Bangladesh en ferðamennska.

Engu að síður eru þessar tvær þjóðir með hástökkvara á lista Skyscanner vefmiðilsins þetta sumarið.

Tekur Skyscanner  saman heildarfjölda fyrirspurna á vef sínum um ferðir og ferðalög til viðkomandi landa og dregur saman í vinsældalista. Vissulega ekki vísindalegt en góð vísbending er það.

Sést af tölfræðinni að Spánn, Bandaríkin og Ítalía eru þau lönd sem helst kemur til greina að heimsækja sumarið 2011. Þar á eftir koma Tyrkland og Frakkland áður en Grikkland kemur við sögu og virðast óeirðir í landinu lítið letja fólk til ferðalaga þangað.

En hástökkvari ársins er Kosovó sem hefur ekki mælst áður en hoppar beint í 67. sætið þetta sumarið. Fleiri Balkanlönd taka stór stökk eins og Makedónía og Serbía en nokkuð er síðan Króatía komst í hóp vinsælustu áfangastaðanna.

Aðrir staðir sem komast inn á topp hundrað fyrsta sinni eru Bangladesh, Madagascar og Grænhöfðaeyjar.