Tíðindi

Leifsstöð hvetur til áfengisdrykkju

  20/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Forsvarsmenn Leifsstöðvar hvetja fólk til áfengisneyslu í nýrri útvarpsauglýsingu flugstöðvarinnar. Er þar ferðafólk hvatt til að koma minnst þremur klukkustundum fyrir brottför sökum meiri anna á flugvellinum og nota tækifærið til að slaka á með einum köldum og góðum mat.

Tæknilega er Leifsstöð að skauta fram hjá lögum er banna áfengisauglýsingar þar sem ekki er tekið neitt annað fram en „einn kaldur“ en það vita allir með vit í kolli að það merkir ekki gosdrykki.

En hægt er að gera athugasemdir við fleira í umræddri auglýsingu því vandséð er að mati ritstjórnar Fararheill hvað er afslappandi við að dvelja í Leifsstöð klukkustundum saman. Þar eru jú engir úrvals veitingastaðir heldur eingöngu tilbúnir matarbakkar í boði og það á útblásnu verði.

Þá eru sætin í Leifsstöð ekki til þess fallin að þar sé þægilegt að planta rassi og lesa góða bók heldur þvert á móti.

Að síðustu tekur engar klukkustundir að kíkja í þær fáu verslanir sem þar finnast og bjóða takmarkað úrval.