Tíðindi

Þreytt á París? En Írak?

  06/01/2012desember 16th, 2013No Comments

Það vakti nokkra furðu fyrir hálfu ári eða svo þegar bresk ferðaskrifstofa bauð fyrsta allra upp á skipulagðar ferðir til Íraks ekki síst vegna þess að átök voru enn í landinu. Síðan hefur töluvert skólp flætt til sjávar og átökum linnt nokkuð þó enn berist fregnir annað veifið um mannslát og dauða hermanna og heimamanna.

Engar grafgötur þarf að fara um hvað varðar áhugaverða staði í landinu. Írak hefur komið við sögu mannkyns frá fyrstu tíð og þar standa minjar um stórkostlega menningarheima á öldum áður jafnvel þó fyrrum ómissandi staðir eins og söfnin í Bagdad séu að mestu tóm að stríðinu loknu,

Því miður er þessi sjón líklegri þeim er heimsækja Írak en fornar minjar og fegurð. Mynd US Army.

Því miður er þessi sjón líklegri þeim er heimsækja Írak en fornar minjar og fegurð. Mynd US Army.

En kannski á ekki að koma á óvart að umrædd ferðaskrifstofa selur ekki lengur ferðir til Írak. Utanríkisráðuneyti flestra ríkja mæla sterklega gegn heimsókn þangað enda ferðamenn auðvelt skotmörk öfgahópa og misyndismanna.