Ritstjórn Fararheill tekur alla sína hatta ofan fyrir ferðaskrifstofunni Vita sem hefur ákveðið að bjóða reglulegar ferðir til Portúgal í sumar. Þó fær ferðaskrifstofan einn mínus fyrir að bjóða ekki aðeins flug heldur eingöngu pakkaferðir.
Beinar ferðir þangað hafa ekki fengist hérlendis síðustu árin og hafa lesendur Fararheill varla misst af gagnrýni vegna þess. Vart er til ódýrara land að ferðast til og um í Evrópu en Portúgal og verðlag almennt tiltölulega gott fyrir Íslendinga með sína þroskaheftu krónu. Mun hagstæðara er að lifa þar en í nágrannalandinu Spáni en þetta hafa íslenskar ferðaskrifstofur ekki haft áhuga á að bjóða frá hrunárinu 2008. Fyrr en nú.
Í boði hjá Vita eru ferðir til Algarve sem margir þekkja frá fyrri tíð og er suðurströnd Portúgals eins og hún leggur sig. Sérstök áhersla er lögð á hótelhverfið Salgados skammt til vesturs frá Albufeira og þó Albufeira sé sams konar ruslakista og Benídorm er Spánarmegin að mati ritstjórnar er strax annað og betra að dvelja í Salgados. Ströndin þar fín, laus við fjöldatúrisma og háhýsi og eins náttúrleg og hægt er að búast við í Algarve. Svæðið er þó nokkuð gerilsneytt af menningu og minjum.
Ritstjórn vill benda á þessa vegvísa um staði á Algarve sem koma beint af skepnunni án litskrúðs og krydds: Faro, Sagres, Tavira, Albufeira.
View Salgados, Algarve, Portúgal in a larger map






