Tíðindi

En hvað þá með ófrískar konur?

  07/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Athygli margra vakti frétt í fjölmiðlum í vikunni um hundrað kílóa einstakling sem kvartaði undan plássleysi í þotu á vegum ferðasalans Iceland Express. Á myndum sást glögglega að afar þröngt var um manninn og gat hann hvorki sett niður matarbakka sinn né lesið bók með góðu móti.

Sigldir Íslendingar vita mætavel hversu óþægilegt er að húka í þrengslum í styttri eða lengri tíma en fyrir utan allt annað hafa rannsóknir sýnt að þrengsli í flugvél geta beinlínis verið heilsuspillandi. Skiptir þá litlu hvort mallakútur er í stærri kantinum eða ekki. Mælast læknar til þess að fólk geri sem allra mest af því að standa upp úr sætum sínum og teygja og hreyfa liði til að koma blóðinu á hreyfingu.

En það er vonlaust í þeim tegundum flugvéla sem Iceland Express og Icelandair nota. Gangurinn er einfaldlega ekki nógu breiður til að fólk geti með góðu móti staðið upp og fett sig og brett stundarkorn og þess utan varla hægt þar sem flugþjónar eru öllum stundum á ferðinni með vagna og einstaklingur sem tekur upp á því að teygja sig og hoppa á miðjum gangi fær hornauga frá velflestum í vélinni.

Hægt er að deila um hvað sé eðlilegt sætisbil í þotum en eins og Fararheill greindi frá um miðjan desember hafa fleiri en feitlagnir kvartað yfir þrengslum í sætum nýrra véla Iceland Express. Ritstjórn veit um fólk sem gæti flokkast sem horað sem illa fór um í flugi með ferðasalanum.

Talsmaður Iceland Express á að hafa sagt að eðlilegt væri hjá lágfargjaldarflugfélagi að hafa eins mörg sæti í vélum sínum og mögulegt sé til að halda niður kostnaði og jafnframt látið hafa eftir sér að illa færi því eðlilega um stórt fólk.

En eru þessi ummæli að gera sig hjá ferðasala sem auglýst hefur grimmt bót og betrun og betri vélar eftir margra mánaða slæma umfjöllun um hrikalegar tafir og vandræði. Hvað með ófrískar konur? Flokkast þær sem stórt fólk líka? Og er Iceland Express með sérstakan skala yfir hvaða stærð fólks flokkast sem stórt fólk?

Þá má ennfremur velta fyrir sér hvort flugfélög með svo þröng sæti bjóði upp á lögsóknir þegar og ef alvarlegt slys verður? Alþjóðlegar flugreglur kveða nefninlega á um að í neyðartilvikum eigi flugfarþegar að beygja sig niður og halda höfði milli fóta sér. Slíkt er alls ekki í boði fyrir þann einstakling sem sést á myndinni að ofan. Og er íslenska þjóðin ekki meðal þeirra allra feitustu í heimi?

Skiljanlegt er að fyrirtæki reyni að hámarka hagnað sinn af sölu þjónustu eða vöru og reyndar hafa íslensk fyrirtæki aldrei gert nokkuð annað að mati ritstjórnar. En ekki þarf að kafa djúpt ofan í markaðsfræðihandbækur og taka mið af stærð þjóðarinnar til að komast að þeirri niðurstöðu að kannski sé ekki svo vitlaust fyrir Iceland Express að fjarlægja eins og eina, tvær sætaraðir og gefa öllum farþegum rúm til að anda og njóta. Það minnkar hagnaðinn núna en eykur hann þegar fram líða stundir.

Þetta er eftir allt saman það flugfélag sem fær 1,7 í einkunn af tíu mögulegum hjá viðskiptavinum sínum á heimsvísu samkvæmt Skytrax.