Íslenski flugumferðarstjórar hafa boðað til yfirvinnubanns eftir að 90 prósent félagsmanna samþykktu slíkt. Eru flugumferðastjórar að þrýsta á um nýjan kjarasamning með þessum aðgerðum sínum. Tekur bannið gildi þann 14. febrúar næstkomandi og gildir á ákveðnum tímum sólarhringsins.
Yfirvinnubann mun ekki hafa mikil áhrif á flug með einni undantekningu þó. Komi upp veikindi á þeim tímum sem bannið stendur yfir getur það haft afleiðingar fyrir flugfarþega.
Á virkum dögum hefst bannið klukkan 20 og stendur til 07 næsta morgun. Þar sem nánast engin farþegaflug hefjast fyrr en klukkan sjö á morgnana er ólíklegt að þetta hafi mikil áhrif á farþega. Líklegra er að vandamál komi upp um helgar og á hátíðisdögum dragist yfirvinnubannið á langinn því bannið gildir allar helgar.






