Vandamálið er velþekkt í New York í Bandaríkjunum og þar hefur hvert hótelið af fætur öðru þurft að loka tímabundið meðan meindýraeyðar vinna sitt verk.

Viðurstyggilegar veggjalýs gera fólki nú lífið leitt í London

Viðurstyggilegar veggjalýs gera fólki nú lífið leitt í London

Um er að ræða hinar frægu veggjalýs, bed bugs, en í New York borg hefur þessum ógeðfelldu pöddum fjölgar gríðarlega á síðustu árum og hafa þær valdið verulegum búsifjum á ýmsum hótelum.

Nú greinir Reuters fréttastofan frá því að pöddurnar séu komnar í víking og meindýraeyðar í London sinna nú sams konar verkefnum á hótelum þar og vestan Atlantsála. Paddan er komin til London.

Efist fólk um fréttastofu Reuters fæst þetta líka staðfest á ferðavefnum Tripadvisor en þar fjölgar kvörtunum vegna lúsa á hótelum í London. Einar 42 þúsund athugasemdir vegna slíkra padda á breskum hótelum hafa birst á þeim vef síðustu mánuðina.

Skiptir engu máli hvort um snautlegt einnar stjörnu gistiheimili er að ræða eða fimm stjörnu lúxushótel. Pöddurnar fara ekki í hótelgreinarálit.

Þessar lýs eins og aðrar elska blóð og geta sogið tífalda þyngd sína af blóði á hverri nóttu og það gera þær fái þær tækifæri til.