Þrátt fyrir að Wow Air bjóði sitt allra lægsta fargjald aðra leiðina út til Dublin alla mánuðina næsta sumarið og enn séu þau fargjöld í boði þegar þetta er skrifað tekst þeim ekki að bjóða betur fram og aftur en easyJet gerir til nágrannaborgarinnar Belfast.

Töluvert lægra verð til Írlands með easyJet en Wow Air.

Töluvert lægra verð til Írlands með easyJet en Wow Air.

Fararheill hefur bent áhugasömum á þá leið til að skoða heiminn ódýrt að fljúga til Írlands eða Norður-Írlands og þaðan áfram til framandi áfangastaða. Tvær ástæður sérstaklega fyrir því. Önnur sú að Írlendingar eru upp til hópa skemmtilegt fólk og landið bráðfallegt þó borgir þeirra fái seint fegurðarverðlaun. Hin ástæðan að ekki er alveg sama eftirspurn þaðan og til dæmis frá London og fargjöld því lægri yfir annatímann í sumar.

Ekki aðeins flýgur easyJet áfram frá Belfast til allmargra staða í Evrópu heldur gerir Ryanair það líka frá Dublin. Með því laginu má því komast til ljúfra staða eins og Split í Króatíu, Möltu og fjölda staða á Ítalíu, Spáni og Portúgal svo fáir séu nefndir. Allt á lágmarksverði ef bókað er með þokkalegum fyrirvara og oft á lægra verði en í beinu flugi héðan sé það í boði.

En sá sem ætlar þessa leiðina áfram til Evrópu er varla að fara töskulaus. Við kíktum því á lægsta verð í boði fram og aftur með Wow Air til Dublin og með easyJet til Belfast. Að minnsta kosti ein vika á milli útflugs og heim aftur. Fyrri taflan sýnir lægsta verð fram og aftur án tösku en sú seinni sömu leið með einni tösku. Öll gjöld og skattar innifaldir og úttekt gerð kl. 11:45 samtímis á báðum vefum flugfélaganna. Einhver kann að benda á að Belfast og Dublin séu ekki einn og sami hlutur sem er kórrétt. Það hins vegar skiptir ekki höfuðmáli sé hugmyndin að fljúga lengra og ekki er langt þar á milli heldur ef út í er farið.

Ýmislegt forvitnilegt kemur í ljós. Til dæmis að easyJet er alltaf að bjóða lægra verð fram og aftur en Wow Air. Munurinn merkilega mikill og eykst bara þegar taska er tekin með í reikninginn.