Tíðindi

Wow Air tekur upp farangursgjald

  28/08/2012No Comments

Nú er ekki lengur hægt að ferðast frítt með töskur með flugfélaginu Wow Air. Frá og með deginum í dag greiða viðskiptavinir þess aukalega fyrir allan farangur utan handfarangurs.

Nú greiðist aukalega fyrir ALLAR innritaðar töskur hjá viðskiptavinum Wow Air og upphæðin töluverð

Þarna tekur Wow Air skref sem ekki hefur verið tekið hingað til af hálfu Iceland Express eða Icelandair þó bæði þau flugfélög hafi jafnt og þétt takmarkað það magn farangurs sem flugfarþegar geta tekið með sér.

2.900 krónur kostar eftirleiðis að fljúga með eina einustu tösku með Wow Air og sú má heldur ekki vera þyngri en 20 kíló. Öll kíló umfram kosta viðkomandi 1.400 krónur í viðbót.

Flugfélagið rukkar farangursgjaldið fyrir hvern legg flugs og því má tvöfalda þessa upphæð fyrir eina tösku til London og heim aftur. Er gjaldið nokkuð yfir því sem gerist og gengur almennt nema hjá easyJet þar sem hver innrituð taska kostar farþegann rúmlega 3.300 krónur miðað við gengi krónu gagnvart erlendum myntum.