Tíðindi

Hver þarf GPS?

  29/08/2012október 25th, 2021No Comments

Enginn! Nema kannski jöklafarar og afleysingamenn í leigubílabransanum. Aðrir ökumenn geta hins vegar fengið allar þær upplýsingar sem þeir kjósa um vegi, færð og staðsetningu gegnum netið eða snjallsíma.

OnTheWay appið sýnir þér allar hugsanlegar leiðir milli tveggja staða og alla veitingastaði, söfn eða bensínstöðvar líka svo dæmi séu tekin

Fjölmörg afar góð vegaforrit eru til úti á hinu risastóra alneti og fer fjölgandi. Með slíkt forrit í síma eða tölvu er minnsta mál að rata inni í borgum, milli borga eða landa og jafnvel velja mismunandi fljótlegar leiðir án þess að róboti ákveði það fyrir þig.

Eitt slíkt sem Fararheill hefur góða reynslu af er OnTheWay sem finnst í snjallsíma og á netinu undir ontheway.app. Þar ritar fólk niður áfangastaði sína og fær ekki aðeins allar hugsanlegar leiðir heldur og allt það helsta á hverri leið fyrir sig.

Þannig má auðveldlega finna alla veitingastaði milli Minneapolis og Winnipeg sé fólk á þeirri leið. Sömuleiðis liggur fyrir að ferðatími á meðalhraða milli Alicante og Marseille eru níu klukkustundir og sautján mínútur.

Þetta getur fólk brúkað á leiðinni sé það nettengt ellegar gert ferðaáætlun fyrirfram og prentað út þær upplýsingar sem það kýs að hafa meðferðis.

Sáraeinfalt og hræbillegt.