Þrátt fyrir liðsinni launalágra Indverja í þjónustuverinu virðist löturhægt ganga hjá Wow Air að takast á við kvartanir farþega sinna eða afgreiða þær kvartanir.

Biddu fyrir þér ef þú þarft aðstoð eftir flug með Wow Air ef marka má þetta skeyti. Mynd Twitter
Fararheill gerði lengi vel feitar athugasemdir við að þjónustuver Icelandair tæki sér rúman mánuð að skoða kvartanir og kærur þeim á hendur. Þú vilt jú ekki bíða í mánuð eftir svörum og eða farangri ef töskurnar þínar skila sér ekki með þér á áfangastað.
En það virðist hrein og klár hátíð miðað við nýleg ummæli á tístvef Wow Air sem sjá má hér til hliðar. Þar kvartar einstaklingur yfir því að hafa beðið fjóra mánuði eftir að flugfélagið tæki kvörtun hans til skoðunar og í kjölfarið fengið þau skilaboð að hann fengi bætur að tíu vikum liðnum!!!
Það þýðir að flugfélag fólksins tekur sér rúmlega sex mánuði til að gera upp við fólkið sitt ef eitthvað bjátar á í flugi Wow Air.
Nú skal ekki fullyrt hvort þessi tími sé eðlilegur hjá þjónustuverinu en sé svo gæti þetta verið lélegasta þjónusta íslensks fyrirtækis. Ekki síður athyglisvert að þessu skeyti hefur ekki verið svarað nú tæpum sólarhring síðar þegar þetta er skrifað. Indverjarnir í jólafríi?







