Afar undarleg „frétt“ á RÚV þennan daginn hvers uppsláttur er að Azoreyjar séu að fara að slá Ísland út sem heitasti áfangastaður ferðafólks og það strax á næsta ári.

Fegurð Azoreyja er alveg á pari við fegurð Íslands. Segjum og skrifum.

Fréttamaðurinn, Lára Ómarsdóttir, ætti kannski aðeins að bregða sér á endurmenntunarnámskeið svo hún þekki muninn á fréttum annars vegar og lífstílsgreinum hins vegar. Munurinn dálítið eins og munurinn á fréttum á mbl og Smartlandi á mbl.

Svo mörg eru mistökin í greininni atarna, sem er í raun þýðing á lífsstílsgrein Bloomberg í Bandaríkjunum, að við getum varla setið á okkur. Skýr krafa allra landsmanna að RÚV vandi sín skrif svo ekki minni á bleikt.is.

A) „Asoreyjar eru nýjasti ævintýraáfangastaðurinn að mati fréttaveitunnar Bloomberg.“  Hvergi í grein Bloomberg er fullyrt að Asoreyjar séu nýjasti ævintýraáfangastaðurinn. Einungis að Azoreyjur gætu tekið við keflinu einn daginn ef blaðamaðurinn fær einhverju ráðið. Ef Marta Smarta skrifar grein á mbl.is um að Mallorca sé nú aldeilis aðalstaðurinn 2017 er þá Mallorca aðalstaðurinn að mati Morgunblaðsins? Hreint ekki. Gera verður greinarmun á lífstílsgreinum, skoðanagreinum og hreinum fréttum. Þar klikkar fréttamaður RÚV.

B) „Í frétt Bloomberg segir […]“  Mergur málsins. Þetta er ekki frétt. Greinin sem Lára Ómars þýðir upp úr finnst undir lífstílsreitnum Pursuits á vef Bloomberg en þar má meðal annars finna greinar um förðun, ferðalög, flotta bíla og dýrar jólagjafir. Uppfyllingarefni eða kostað efni en ekki fréttir í neinni merkingu.

C) „Fyrir rúmu ári hóf RyanAir áætlunarflug þangað og nú hefur flugfélagið Azores Airlines ákveðið að fjölga flugferðum til eyjanna frá Bandaríkjunum um 47% árið 2017 og það á lágu verði.“ Hvað Ryanair kemur málinu við er óljóst. Hvergi minnst á Ryanair í grein Bloomberg. Það er hins vegar rétt að Ryanair hóf reglulegt flug til Azoreyja sumarið 2015 frá London eins og Fararheill greindi frá í janúar það ár. En Lára hefði nú líka átt að benda á að easyJet flýgur líka til Azoreyja sem og hið portúgalska TAP og fleiri aðilar eins og við höfum líka bent lesendum okkar á. Hvers vegna tiltaka aðeins Ryanair? Verra þó að hvergi kemur fram hvað það þýðir að flug til eyjanna eykst um 47% af hálfu Azores Airlines. Það segir lesendum ekki nokkurn hlut. Hvað eru margar vélar að fljúga til og frá í dag og hversu margar verða þær? Aðeins þannig getur Lára staðfest „frétt“ sína að Azoreyjar séu að fara að taka við af Íslandi sem heitasti hluturinn í ferðaiðnaði.

Í ljós kemur að rúmlega tíu vélar Azores Airlines, áður Sata, flugu fram og aftur með farþega milli Bandaríkjanna og Azoreyja vikulega síðasta sumarið í áætlunarflugi. Þessi „47%“ aukning sem talað er um og á að steypa Íslandi af stalli sem aðalpleisinu þýðir að næsta sumar verða kringum fimmtán vélar að ferja farþega til og frá í hverri viku. Til samanburðar ætti að nægja að benda á að í dag, 27. desember sem er fjarri því annatími í flugi, lentu yfir 60 farþegavélar í Keflavík.

Það er sem sagt aldeilis fráleitt að Azoreyjar séu að taka kyndilinn af Íslandi á næstu árum og hvað þá á næsta ári eins og Bloomberg bullar um.

Vanda sig 😉

PS: Hvers vegna skrifum við Azoreyjar en ekki Asóreyjar eins og málfarslög gera ráð fyrir? Azoreyjar er bara svo miklu miklu flottara 🙂