Það er yfirleitt aðeins illa vitiborið fólk sem gleypir linnulaust við óhróðri og rætnum sögum sem ganga um hina og þessa alla daga ársins í litlu landi. Það vekur samt athygli okkar hér að þrátt fyrir býsna alvarlegar dylgjur um flugfélagið Wow Air heyrist ekki múkk í eigandanum.

Innlendir fjölmiðlar greina frá bágri stöðu Wow Air. En eigandinn hljóður sem mállaus munkur.

Aðeins eru tveir dagar síðan vefmiðillinn Eyjan fabúleraði um að flugfélag Skúla Mogensen, Wow Air, stæði á alvarlegum brauðfótum og riði beinlínis til falls á næstunni nema eitthvað mikið kæmi til. Skömmu áður fjallaði Stöð 2 um að spekingar hefðu áhyggjur af rekstri flugfélagsins. Sams konar greinar birst á Kjarnanum og Morgunblaðinu undanfarna daga.

Slíkum fregnum alltaf best að taka með fyrirvara. Það hefur lengi þótt móðins hjá markaðsfólki að koma að neikvæðum fregnum um samkeppnisaðila og slíkt sáraeinfalt á litlu landi með bláfátæka fjölmiðla hvers starfsfólk er að mestu nýkomið með hár á pjöllu og pung.

Gott dæmi um getuleysi stóru fjölmiðlanna sú staðreynd, okkur vitandi, að enginn þeirra hefur gert hina minnstu tilraun til að heyra í Skúla Mogensen vegna málsins. Hvernig má það vera að maður sem vefur fjölmiðlum um fingur sér þegar kemur að afmælum og dúlleríi segir ekki aukatekið orð þegar fjölmiðlar gera að því skóna að eitt fyrirtækja hans sé á heljarþröm?

Burtséð frá getulitlum fjölmiðlum þá er önnur vægast sagt rík ástæða fyrir herra Mogensen að láta í sér heyra opinberlega og þá væntanlega til að kveða slæman orðróm niður. Ástæðan sú að flugfélagið er farið að auglýsa ferðir hingað og þangað langt fram á næsta vetur. Það segir sig sjálft að ef landinn fær þær fregnir að Wow Air standi jafnvel við dauðans dyr þarf töluvert skerta vitsmuni til að kaupa flug með Wow Air langt fram í tímann. Enginn skíðaáhugamaður er að fara að sjoppa tveggja vikna skíðaferð til Salzburg með familíuna ef einhver hætta er á að flugfélagið heyri sögunni til þegar að ferðinni kemur.

Ýmsir kunna að benda á að við hér hjá Fararheill fáum seint sérstök vinaverðlaun Wow Air. En okkar gagnrýni, ólíkt því sem margir kunna að halda, snýst ekki um að snúa Wow Air í svaðið. Þvert á móti berjumst við fyrir að flugfélagið, og Skúli sjálfur, sýni viðskiptavinum sínum virðingu, kurteisi og hjálpsemi. Á allt þrennt hefur vantað verulega uppá síðustu árin og gæti vel verið ein ástæða þess að illa gengur sé það raunin. Það þarf jú ótrúlegt hugmyndaflug til að ímynda sér að pínkulítið sex ára gamalt íslenskt flugfélag sé nánast eftst á lista bandarískra stjórnvalda yfir þau erlendu flugfélög sem mest er kvartað yfir. Það eru jú ekki mörg hundruð erlend flugfélög að fljúga til og frá Bandaríkjunum.

Að því sögðu væri dapurt ef staðan er virkilega sú að Wow Air berst í bökkum. Dapurlegt því samkeppni er alltaf af hinu góða, fjöldi ágætra starfa gætu tapast og flugfélagið sannarlega boðið upp á ferskari áfangastaði héðan en Icelandair hefur gert frá því Wright-bræður flugu sína fimm metra.

Það þarf engan sérfræðing til að vita að illur rómur fær oft byr undir báða þegar fólk svarar ekki fyrir sig. Mælum eindregið með að herra Mogensen sýni með rökum að flugfélagið Wow Air stendur traustum fótum þrátt fyrir síðustu áföll.

Ef hann gerir það ekki, er hið versta óráð að kaupa flug með þeim á næstunni…