Úttekt Fararheill á lægstu fargjöldum íslensku flugfélaganna til Washington D.C. næsta sumarið sýnir að önnur leið með sköttum og gjöldum hjá Wow Air reynist rúmlega tíu þúsund krónum ódýrari að meðaltali. En þá aðeins að enginn sé farangur með.

Wow Air enn að bjóða mun betur en Icelandair til Washington næsta sumar en lítill munur ef farangur er með í för.
Næsta sumarið þarf Icelandair loks að keppa við annan aðila um farþega til og frá Washingtonborg í Bandaríkjunum. Þar er á ferð Wow Air hvers lágu fargjöld hafa vakið nokkra athygli vestanhafs og forstjóri félagsins verið duglegur að koma þeim á framfæri.
Wow Air bauð upp á ákveðinn fjölda sæta á kynningarverði í síðasta mánuði þegar nýi áfangastaðurinn var kynntur. Þá fékkst flug aðra leiðina niður undir sextán þúsund krónur án farangurs. Leit nú leiðir í ljós að allra lægsta verð aðra leið með sköttum og gjöldum kostar 23.348 krónur og enginn farangur innifalinn.
Til Bandaríkjanna er það skrambi gott verð þrátt fyrir allt og ekki hærra en algengt verð flugfélagsins til ýmissa áfangastaða þess í Evrópu síðasta veturinn. Hér ber þó að hafa í huga að hér er um allra lægsta verð næsta sumarið og algengara er að finna flug yfir 30 þúsund krónum aðra leiðina án farangurs þegar þetta er skrifað.
Verra er að í samanburði við Icelandair sem eins og áður býður flugfarþegum til Bandaríkjanna að hafa með tvær 23 kílóa töskur reynist flug með Wow Air lítið ódýrara sé sömu tveimur töskum bætt við fargjaldið. Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi töflum. Sú fyrri sýnir lægsta fargjald beggja flugfélaga aðra leiðina út alla sumarmánuðina 2015 og sú seinni sömu fargjöld en nú hafa tvær töskur bæst við fargjald Wow Air.
Eitt enn er ágætt að hafa í huga fyrir þau ykkar sem hafið áhuga að spóka ykkur í þessari höfuðborg Bandaríkjanna. Það er sú staðreynd að flugfélögin nota ekki sömu flugvelli. Icelandair flýgur til Dulles flugvallar 40 mínútur til vesturs af borginni en Wow Air notast við Baltimore Washington flugvöll sem er nær Baltimore en Washington og keyrsla inn í þá síðarnefndu tekur rétt tæpa klukkustund að lágmarki.
- Án farangurs hjá Wow Air
- Með sama farangur
* Öll verð rétt kl. 11.20 þann ellefta nóvember 2014 miðað við stöðuna á bókunarvélum flugfélaganna. Hafa skal hugfast að verð breytast ört.







