Við vitum ekki um ykkur en það er fjölmargt verra í veröldinni en að lifa og njóta undir karabískri sól í miðjum desembermánuði. Ekki hvað síst ef það er algjörlega ókeypis dvöl.

Ferð og uppihald í dásemdar paradís í desember er vinningurinn í samkeppni Dohop þessa dagana.

Ferð og uppihald í dásemdar paradís í desember er vinningurinn í samkeppni Dohop þessa dagana.

Það er í hnotskurn sem hinn íslenski flugleitarvefur Dohop er að bjóða núna en þar á bæ er samkeppni í gangi núna um hver vinni ferð og uppihald í fimm daga á einni af eyjaperlum Karíbahafs. Anguilla heitir sú eyja og er dásamleg með stóru Dé-i.

Hvers vegna Dohop er að efna til samkeppni um ferð þangað og dvöl um fimm daga skeið helgast af því að fyrirtækið hefur verið tilnefnt sem ein af bestu flugleitarvélum á vefnum af hálfu hinna virtu World Travel Awards.

Sigurvegarinn verður kynntur með pompi og prakt á Anguilla í desember en samkvæmt fréttatilkynningu Dohop getur enginn hjá fyrirtækinu verið viðstaddur þann tíma. Þess vegna er efnt til þessarar samkeppni um ferðina en sá heppni eða heppna yrði einnig að taka við verðlaunum fyrir hönd Dohop ef verðlaunin falla þeim í skaut.

Ekki slæmt prógramm ef þú spyrð okkur en viðkomandi þarf reyndar að senda fyrirtækinu vídeó þar sem fram skal koma hvers vegna þú en ekki aðrir ættu að fá að fara umrædda ferð.

Nánar hér.