Fyrir þau ykkar sem hyggja á ferð til London í desembermánuði er ágætt að setja bak eyra að fljúga með öðrum en íslensku flugfélögunum. Það er að segja nema þú viljir borga helmingi meira fyrir sömu vöru.

Lággjaldastimpilinn virðist ekki eiga við Wow Air til London í desember.
Í ljós kemur samkvæmt úttekt Fararheill á fargjöldum til London frá Keflavík og aftur heim á þremur mismunandi dagsetningum í jólamánuðinum að íslensku flugfélögin standast þar engan samanburð. Sérstaklega kemur Wow Air illa út en Skúli Mogensen og hans fólk heimtar HELMINGI hærra verð fyrir pakkann en Norwegian.
Verðmuninn má glöggt sjá á meðfylgjandi töflu. Þar reyndar erfitt að sjá í fljótu bragði að Wow Air sé lággjaldaflugfélag því hin tvö flugfélögin sem svo stimpla sig eru að bjóða langtum lægra verð í öllum tilvikum. Verðmunur á Norwegian og Wow Air mestur 190% þegar verst lætur. Flug með flugfélagi Skúla meira að segja langtum dýrara en með Icelandair í einu tilviki.
* Leitað samtímis hjá öllum aðilum að lægsta fargjaldi á umræddum dagsetningum til Gatwick. Einni tösku bætt við hjá öllum aðilum en slíkt innifalið hjá Icelandair. Verð með öllum sköttum og gjöldum. Leitað kl. 20 þann 25. ágúst 2016 og verði breytt í krónur miðað við miðgengi dagsins.







