Myndir þú rjúka upp til handa og fóta ef einhver þjónustuaðili auglýsti fimm prósenta afslátt af tiltekinni vöru?

Sérstök hraðtilboð Icelandair eru á stundum ekki par merkileg.

Sérstök hraðtilboð Icelandair eru á stundum ekki par merkileg.

Hæpið verður að segjast fyrir okkur flest. Fimm prósenta afsláttur einfaldlega ekki nógu drjúgt til að gera sér spes ferð eftir nema um eitthvað æði sérstakt sé að ræða.

Það sem kemur sumum á óvart er að þetta er afsláttarprósentan á stöku þeim flugferðum sem Icelandair auglýsir sem sérstök hraðtilboð og eru lægstu fargjöld sem það flugfélag selur. Þau fargjöld þó eyrnamerkt tilteknum tímum árs þegar sala er dræmari en ella.

Þetta má glöggt sjá núna þegar nýtt hraðtilboð hefur séð dagsins ljós. Þar má finna flug aðra leið til Stokkhólms í vetur alveg niður í 14.400 krónur svo dæmi sé tekið.  Það hljómar ekki illa. Fram og aftur kringum 30 þúsund kallinn eða svo.

En ef þú tekur þér augnablik til að bera tilboðsverð til Stokkhólms saman við lægsta fargjald Icelandair almennt aðra leið til Stokkhólms gæti þér brugðið lítillega. Almennt lágmarksverð er 15.200 krónur.

Það, dömur mínar og herrar, samsvarar rétt rúmlega fimm prósenta afslætti. Þú kemst, með öðrum orðum, til Stokkhólms og heim aftur fyrir 30 þúsund kallinn eða svo á lægsta hefðbunda fargjaldi án þess að eltast við „hraðtilboð.“

Ekki svo að skilja að afsláttarkjör séu svo döpur yfir línuna á tilboðspökkum flugfélagsins. Á lengri ferðum er á köflum hægt að gera ágæt kaup. En á styttri og vinsælli flugleiðum er raunin oftar en ekki að afslátturinn slefar í örfá prósent og sé miðað við að hraðtilboðsmiðar gilda einungis innan þröngs tímaramma eru þau kaup stundum ekki svo frábær.