Tíðindi

Wow Air kaupir rekstur Iceland Express

  23/10/2012No Comments

Athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson hefur selt allan helsta rekstur Iceland Express til síns helsta samkeppnisaðila Wow Air. Tilkynning þar að lútandi var send fjölmiðlum í dag en salan er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Wow Air hefur keypt flugrekstur Iceland Express en kaupin eiga þó eftir að hljóta blessun samkeppnisyfirvalda.

Mun Wow Air yfirtaka allt flug Iceland Express sem hefur samning við tékkneska flugfélagið CZA Holidays um rekstur flugvéla félagsins. Uppsagnir eru sagðar óhjákvæmilegar en hversu margir verða að taka pokann liggur ekki ljóst fyrir að sögn Skúla Mogensen, forstjóra Wow Air.

Skammt er síðan Pálmi setti Ferðaskrifstofu Íslands á sölulista en undir það merki heyra ferðaskrifstofurnar Plúsferðir, Úrval Útsýn og Sumarferðir auk dönsku ferðaskrifstofunnar Hekla. Virðist Pálmi Haraldsson vera kominn með upp í háls af ferðaþjónustu því það var að hans undirlagi sem Wow Air var gert tilboð um kaupin.

Ekki liggur fyrir hvort eða hvaða breytingar þetta mun hafa í för með sér varðandi flugáætlun Iceland Express næsta árið en skammt er síðan félagið tilkynnti um sumaráætlun sína þar sem meðal annars var áætlað að hefja Bandaríkjaflug að nýju.