Sé einhver þarna úti, og líklega eru margir, sem dreymir um það helst á ferðalögum að vera sem mest lausir við aðra ferðamenn, lausir við botnlausa sölumennsku og troðfullar strendur. Þeir sem vilja gjarna upplifa aðra menningu og náttúru án þessa alls eiga til þess ennþá einn einasta möguleika; Svartfjallaland.

Þetta litla samanklessta land milli Króatíu, sem sjálft var ekki fyrir svo löngu laust að mestu við alla ferðamennsku, og Albaníu, sem enn þykir lítt spennandi kostur fyrir ferðamenn, er ennþá ótrúlega laust við leiðindin sem fylgja vinsælum ferðamannastöðum. Ekki af því að þar sé ekki nóg að skoða og upplifa heldur af því að það er fyrst nú sem ferðamálayfirvöld í landinu hafa efni á að kynna land sitt og þjóð.

Ferðaskrifstofur hafa hingað til látið nægja að senda eina og eina vél yfir háannatímann hingað til og titlað slíkt sem sérferðir.

En ekki lengur. Fjölmörg flugfélög eru nú að setja Svartfjallaland á flugkortið en enn er tími til stefnu þetta sumarið allavega til að kynnast landi og þjóð sem sjálf hefur lítið sem ekkert kynnst ferðafólki. Labba um ómengaðar strendur sem lausar eru við sölumenn og mannfjölda. Skoða króka og kima glæsilegra gamalla bygginga án þess að fara í röð við miðasölu. Án þess að geta keypt ferðahandbækur um staðinn vegna þess að engar slíkar eru komnar út.