Tíðindi

Wow Air dregur úr stóru yfirlýsingunum

  10/01/2013desember 17th, 2013No Comments

Heimasíða Wow Air hefur tekið breytingum en þar má nú sjá á áberandi hátt nýja yfirlýsingu flugfélagsins með skýru fjólubláu letri á gulum bakgrunni. Þar sést, eins og sjá má á meðfylgjandi skjámynd, loforð Wow Air um aukna tíðni, stundvísi og lægra verð.

Kannski þetta blekki marga en í raun er fyrirtækið að draga verulega úr fyrri yfirlýsingum sínum.

Það hefur einu sinni komið fyrir á erlendri grundu að einn úr ritstjórn Fararheill var ásakaður um að vera sjáandi og miðill en þar sem um var að ræða stúlku á bar seint um kvöld þá telur það ekki.

En Fararheill sá hins vegar mætavel fyrir að Wow Air þyrfi að slaka á með stóru orðin og fjallaði um það í pistli strax eftir jómfrúarflug félagsins í júní.

Við bentum eiganda Wow og þáverandi forstjóra á, þrátt fyrir litla kunnáttu í markaðsfræðum, að það væri kannski pínkupons sniðugra að láta verkin tala í stað þess að vera með háfleygar yfirlýsingar um að gera hitt vel og þetta betur. Bjóða best og vera stundvísari en aðrir.

Því það er gömul saga og ný, en saga sem markaðsfræðingar virðast aldrei hafa heyrt, að fyrirtæki sem stendur sig vel, gerir góða hluti af því að starfsmenn eru ánægðir og vilja að fyrirtæki sínu gangi vel og síðast en ekki síst kemur fram við hvern einasta viðskiptavin eins og um besta vin sé að ræða fær sjálfkrafa byr í seglin án þess að þurfa að punga út milljónum króna í auglýsingar.

Ábyggilega er til eitthvað niðrandi markaðsorð yfir slík vinnubrögð og enginn útlærður markaðspési getur verið þekktur fyrir að ætla að fá meðvind með því að koma fram við viðskiptavini eins og manneskjur. Ganga lengra en þörf krefur til að viðskiptavininum líði vel og sá sé aldrei í vafa um að hafa valið rétt fyrirtæki að eiga viðskipti við.

Í öllu falli fóru varnaðarorð Fararheill inn um eitt og út um annað og nú þarf ekki annað en skoða fésbókarvef fyrirtækisins til að átta sig á að þar eru margir súrir og svekktir.

Það tækifæri kemur ekki aftur enda hefur fyrirtæki, eins og einstaklingur, í raun aðeins eitt einasta tækifæri til að koma sér vel fyrir í huga fólks. Vestur í Bandaríkjunum er talað um first impressions og það gilda ekki síður um fyrirtæki en manneskjur.

En hvers vegna er Wow Air að draga úr stóru orðunum nú? Kíkjum á það.

Aukin tíðni: Hljómar vel en hvað þýðir þetta? Aukin tíðni allra ferða félagsins eða aukin tíðni ferða til London? Það sem kynnt hefur verið af vor- og sumaráætlun félagsins er samt aðeins brot af því sem var í boði fyrir landann áður en Wow keypti Iceland Express. Færri ferðir eru á færri staði og enginn stærðfræðingur getur með nokkru móti reiknað út að um aukna tíðni sé að ræða.

Stundvísi: Henni var einnig lofað í vor áður en fyrsta flug Wow Air fór í loftið en það stóðst ekki. Hvers vegna ættum við að trúa ykkur núna? Og hvað ætlið þið að gera ef það kemur eldgos? Áfram að lofa stundvísi? Þorir Wow Air að bakka það upp með afslætti ef það stenst ekki? Orðum fylgir jú ábyrgð.

Lægra verð: Hér er hins vegar stóra málið og ástæða fyrirsagnar þessarar greinar. Wow ætlar að lofa lægra verði. Fyrsta spurningin hlýtur að vera lægra verði en hvað? Önnur spurningin hlýtur einnig að vera: hvað varð um síðasta loforðið þess efnis að vera „alltaf alltaf með lægsta verð á flugi til og frá landinu?“

Þetta loforð gaf Wow Air á fésbókarvef sínum í desember. Nú hefur heldur verið dregið úr því