Fyrstu hraðtilboð nýs árs hjá Icelandair hafa litið dagsins ljós en þar er í boði flug á tilboðsverði til sex mismunandi borga og ferðatímabil fram í mars og apríl.
Þar er hægt að kaupa fargjald aðra leið til Kaupmannahafnar, Osló og Glasgow á 14.900 krónur aðra leiðina, önnur leiðin til Frankfurt á 16.900 krónur og jafnframt er ferðir í boði til Boston og Denver á lækkuðu verði. Önnur leið til Boston á 27.900 krónur en fargjaldið til Denver á 36.900.
Þessi fargjöld gilda fyrir flug á fjórða og lakasta farrými flugfélagsins og ferðatíminn sem hér segir: Til Kaupmannahafnar, Ósló og Glasgow má fljúga milli 24. janúar og 26. mars. Til Frankfurt verður að fara milli 24. janúar og 30. apríl, Boston frá 28. janúar til 15. apríl og Denver 31. janúar – 30. apríl.
Sölutímabil: 10. janúar frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 12:00 á hádegi 11. janúar.
Nokkuð er um takmarkandi skilmála svo enginn fari sér að voða eða græði á flugfélaginu.
Tilboðin eru í boði til hádegis 11. janúar.
Heimasíða Icelandair hér.








