GB ferðir hafa sett í sölu tvær ferðir til London um páskana. Er um þriggja eða fjögurra nátta ferðir að ræða og kosta þær frá 99.000 til 109.000 á mann en gist er á Intercontinental á Park Lane.
Könnun Fararheill.is leiðir í ljós að ódýrasta herbergi (superior) á hótelinu samkvæmt heimasíðu þess í fjóra daga yfir páskana kostar 89.000 krónur og flugfar með Icelandair fékkst á 50.390 fyrir manninn 9. – 13. apríl sem eru sömu flug og GB ferðir bjóða í dýrari pakkanum.
Áhugasamir geta þannig með lítilli fyrirhöfn orðið sér sjálfir úti um sömu fjögurra nátta ferð og GB ferðir bjóða á 109 þúsund á mann fyrir 94.500. Við það sparast 14.500 krónur.
Er þetta ekki í fyrsta skipti sem svokölluð tilboð GB ferða reynast heldur dapurleg þegar vel er að gáð.
GB Ferðir verð með tvær Páskaferðir til London í ár. Gist verður á INTERCONTINENTAL LONDON – Park Lane. Hótelið er eitt af uppáhaldshótelunum okkar þar í borg, í hjarta Mayfair. Mikið er lagt í hótelið og það er mjög glæsilegt í alla staði. Hótelið var endurgert 2007 og tókst það mjög vel. Á hótelinu eru 447 herbergi ( þar af 60 svítur). Hótelið inniheldur einn veitingastað Theo Randall, kaffihús og testofu, góða líkamsræktaraðstöðu og heilsulind. Frá hótelinu er stutt í allar áttir, s.s. Buckingham Palace, Tower of London, Big Ben og Trafalgar square. Annað sem virði er að skoða er Madame Tussauds og The National Portrait Gallery.






