Það byrjar ekki beint vel hjá hinu orðfagra dótturfyrirtæki Icelandair: Air Iceland Connect. Fjölmiðlar greina frá nauðlendingu vélar á leið til Egilsstaða á Akureyri vegna reyks í flugstjórnarklefa. Forstjórinn lofar ítarlegri skoðun á málinu.

Skiptum út vélum sem bila nánast aldrei fyrir vélar sem bila sýknt og heilagt.
Hafi einhvern tímann verið sóknarfæri fyrir nýtt flugfélag innanlands er tíminn aldeilis núna. Flugfélag Íslands, nú Air Iceland Connect, er að fljúga vélum sem bila á sirka fimm mínútna fresti. Reykur í flugstjórnarklefa þennan daginn og ekki er langt síðan hjól véla flugfélagsins fóru ekki niður þegar á þurfti að halda aftur og ítrekað. Pant ekki vera um borð þegar flugstjórinn tilkynnir að magalending sé nauðsynleg á Ísafjarðarflugvelli.
Sorgarsaga Air Iceland Connect heldur áfram og var það fyrirséð fyrir blindan einstakling en ekki stjóra Icelandair. Sorgarsaga sem til að mynda má lesa um á flugvefnum Aeroinside.com sem heldur utan um neyðartilvik í flugheimum. Þar má til dæmis finna fjölda tilkynninga um nauðlendingar Bombardier 400 véla, sem Air Iceland Connect notar nú, versus nauðlendingar Fokker-véla á borð við þær sem Flugfélag Íslands, nú Air Iceland Connect, notaði áður. Staðan samkvæmt síðustu sex árum er 293 – 27 fyrir Bombardier. „Nýlegar“ vélar Air Iceland Connect eru bara 985 prósent líklegri að bila en gamli góði Fokkerinn.
Það vita bíladellukarlar og hugsandi fólk að algjör óþarfi er að skipta út hlutum sem virka þó nýir og glansandi hlutir séu fallegri. Stjóri Icelandair hefur þó aldrei þurft svo mikið sem skipta um dekk enda milljónamæringur og ekki sérfræðingur í öðru en hvort Riesling eða Bordeaux fari betur með laxinum í bústaðnum.
Sem skýrir hvers vegna „hagkvæmari“ vélar Air Iceland Connect hafa alls ekki lækkað flugfargjöld innanlands um eina krónu. Þvert á móti eiginlega. Það er nú dýrara að fljúga innanlands en nokkru sinni áður. Það er bara enginn að segja þér frá því nema við.







