Glöggir lesendur Fararheill muna eflaust eftir uppþoti og stuttu fjölmiðlafári fyrr á árinu þegar hlutabréf Icelandair féllu hraðar en mannorð Ólafs Ólafssonar. Þá hafði forstjórinn á orði að kannski yrði flugfélagið að koma aðeins út úr skápnum varðandi samvinnu við vinsælar leitarvélar.

Ýmis bellibrögð reynd þarna úti gott fólk. Skjáskot RÚV
Aldrei var okkur vitandi gengið á karlinn hvað það nákvæmlega þýddi að opna dyrnar fyrir leitarvélum að fargjaldasölu Icelandair en við hér höfum haft annað augað opið hvað þetta varðar. Og hugsanlega höfum við komist að því hvað þetta merkir: Mun lægri fargjöld gegnum aðra miðla en á bókunarvef sjálfs flugfélagsins.
Hér að neðan gefur að líta tvö dæmi um hve dýrt er að bóka beint hjá Icelandair versus að bóka NÁKVÆMLEGA sama flug gegnum aðra aðila. Því fer fjarri að tvö dæmi sanni nokkuð sérstakt út af fyrir sig og vissulega var ekki óþekkt áður að fargjöld flugfélaga fengjust ódýrari hjá öðrum en flugfélögunum sjálfum. En það er líka þekkt að flugfélög gefi öðrum aðilum færi á að selja lægri fargjöld en fást hjá þeim sjálfum til að selja meira af vöru sinni án þess að fá á sig lággjaldastimpil með því að selja þau lágt sjálf.
Það er til dæmis næsta ómögulegt að finna ódýrara fargjald með Wow Air eða slíkum lággjaldaflugfélögum hjá öðrum aðilum en flugfélögunum sjálfum. En það er ekki alfarið raunin hjá Icelandair.
DÆMI A: Flug fram og aftur til Gautaborgar í lok ágúst:

Verð á vef Icelandair

Sama flug á flugvef Momondo. 196 evrur eru rétt rúmar 21 þúsund krónur.

Og sama flugið á vef Dohop.
Ekki þarf sérstaka stærðfræðikunnáttu til að sjá að hér er töluverður verðmunur á sömu vöru. Hér um einn einstakling að ræða en sé par eða hjón á flakkinu spara þau sér um FJÓRTÁN ÞÚSUND KRÓNUR á að bóka flugið EKKI gegnum Icelandair.
DÆMI B: Flug fram og aftur til Kaupmannahafnar um miðjan júlí:

Lægsta fargjald á vef Icelandair tæpar 54 þúsund krónur á haus.

Momondo er að bjóða sama flugið á rétt rúmar 48 þúsund krónur.

Og keimlíkur díll hjá Dohop
Aftur hér er allnokkur verðmunur á sömu vörunni með sama flugfélaginu en aftur er Icelandair að heimta feitari seðil en minni spámenn þarna úti. Hjón eða par í þessu tilfelli spara sér tæplega TÓLF ÞÚSUND KRÓNUR á að versla við aðra en flugfélagið sjálft.
Hættu svo að láta fyrirtæki taka af þér peninga án þess að blikka auga 😉







