Icelandair auglýsir nú sérstakt vildarpunktatilboð sem gildir aðeins í dag og til miðnættis annað kvöld. Fást þannig tvö- eða þrefaldir vildarpunktar fyrir hverja keypta ferð hjá flugfélaginu milli 1. nóvember og 10. desember.
Fást þannig þrefaldir vildarpunktar nú þegar keypt er flugferð á Saga Class farrými þeirra en tvöfaldur fjöldi punkta fyrir almúgann á almúgafarrými.
Ritstjórn Fararheill.is hefur um árafjöld undrast þessa vildarpunktamaníu í hinum vestræna heimi enda að öllu leyti eðlilegra gagnvart viðskiptavininum að gefa bara hreinan afslátt af fargjöldum. En sökum þess hve margir gleyma að nýta sér punktana má slá föstu að flugfélögin græða nokkuð á þessu á kostnað flugfarþega.






