Aflýsa hefur þurft fjölmörgum flugum frá ýmsum flugvöllum í Evrópu í dag sökum slæms veðurs og færðar.
Hefur nánast öll starfsemi lamast á alþjóðaflugvellinum í Frankfurt og nokkrir flugvellir í Bretlandi, þar á meðal Gatwick, hafa lokast tímabundið vegna snjóa.
Spáin er ekki góð frameftir degi né heldur fram að helgi og má því búast við töfum og jafnvel niðurfellingu flugs ef það reynist raunin. Þá er heldur ekki auðvelt að fara milli flugvalla sökum ófærðar víða en snjóað hefur talsvert í álfunni síðustu dagana.






