Tíðindi

Dapurlegt tilboð GB Ferða

  01/12/2010september 29th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan GB Ferðir auglýsir nú í samvinnu við Icelandair helgarferðir til London frá febrúar til júní. Gist er á ágætu hóteli, Hilton London Tower Bridge, í miðborginni og kosta herlegheitin 214.000 krónur miðað við tvo fullorðna í herbergi með morgunverði.

Það tók ritstjórn Fararheill.is einar fjórar mínútur að spara sér 34.366 krónur með því að græja nákvæmlega sömu ferð og GB Ferðir auglýsa með því að panta á eigin spýtur flugið og gistinguna.

Miðað var við dagsetninguna 11. – 14. febrúar sem er ein þeirra dagsetninga sem GB Ferðir býður. Flugið fyrir tvo þessa daga kostar samtals 81.740 krónur og hefðbundið tveggja manna herbergi með morgunverði fékkst á 97.894 krónur. Samtals kostaði ferðin 179.634.

Þá vekur athygli að GB Ferðir taka 5.000 krónu gjald fyrir hverja bókun gegnum síma. Sé því einhver svo óheppinn að vera ekki í netsambandi eða hafa ekki kunnáttu eða traust á netinu greiðir sá sami tíu þúsund krónur aukalega fyrir bókun sem ætti að öllu eðlilega að taka fáeinar mínútur.