Janúar, febrúar, mars. Sennilega ekki ýkja margir sem núa saman lófum af tilhlökkun enda blása vindar ótt og títt og það yfirleitt afar köldu þennan myrka tíma hérna norður í ballarhafi. En það eru nú nokkur ljós í myrkrinu.

Vill einhver stytta veturinn um viku fyrir 25 þúsund krónur?

Vill einhver stytta veturinn um viku fyrir 25 þúsund krónur?

Eitt þeirra er sjö nátta tilboð til Algarve í Portúgal á ákveðnum dagsetningum þessa mánuði. Frá Bretlandi fæst slíkt frí á fjögurra stjörnu hóteli fyrir hið hlægilega verð 24.500 krónur á mann miðað við tvo. Já, þú last þetta rétt. Þarna er miðað við flug til og frá Gatwick og gistingu í vikutíma.

Örlítill meiri lúxus kostar aðeins meira en þó engin ósköp heldur. Sami pakki með öllu-inniföldu fæst líka á ákveðnum dagsetningum í janúar, febrúar og mars frá 41.650 krónum á mann miðað við tvo.

Kjörið tækifæri að eyða gjafakortum Wow Air/Icelandair í flug til Gatwick og halda áfram til Algarve og málið steindautt. Ódýrara verður það ekki og skammdegið aðeins styttra fyrir vikið.

Nánar hér.