Kaliforníuríki er gjörsamlega á kúpunni eftir að ríkisstjórinn rígmassaði Arnold Schwartzenegger fékk að halda um budduna um nokkurra ára skeið. Það er sú ástæða sem veldur því að allt er nú skoðað til að bæta stöðu ríkisins og nú eru uppi hugmyndir um að kaupa Neverland búgarð Michael Jackson og breyta honum í almenningsgarð.
Búgarðurinn fæst ekki frítt en bent er á að ríkið þyrfti í raun fátt að gera annað en innsigla kaupin. Búgarðurinn er allur meira eða minna hannaður sem skemmtigarður og þar er allt það sem börnum á öllum aldri gætu þótt skemmtilegt. Fyrir þá sem eldri eru og ekki síst fyrir moonwalk kynslóðina heillar svaðalega að skoða húsakynni tónlistarstjörnunnar í návígi.
Eru á svæðinu fjöldi gosbrunna. Tilbúið vatn með fjölda fiska, hesthús með stórum sem smáum hestum og lítill dýragarður. Húsnæði Jacksons sjálfs á meira skylt við kastala en búgarð og fjöldi herbergja meiri en tölu verður á komið. Þá hlýtur svefnherbergi goðsins eitt og sér að heilla þær hundruð milljónir manna um víða veröld sem héldu upp á karlinn. Er þá ótalinn enn alvöru skemmtigarður með hringekjum og litlu parísarhjóli
Bent er á Graceland, búgarð Elvis Presley, sem fyrirmynd en aðsókn að þeim stað er ennþá með ólíkindum og skilar Graceland eigendum sínum árlega um fjórum milljörðum króna í tekjur.
Slíka peninga gæti Kaliforníuríki sannarlega notað þó vissulega þyrfti að punga út fyrir búgarðnum sjálfum. Á móti kemur að þegar eru fyrir níu stórir skemmtigarðar í ríkinu sem velflestir glíma við fjárhagserfiðleika nú um stundir.






