Skíðaferðir eru ómissandi þáttur í lífi margra og janúar og febrúar jafnan sterkustu ferðamánuðirnir til þess arna. Úrval slíkra ferða merkilega gott hér heima og hægt að velja um allmarga fína skíðastaði í Bandaríkjunum, Austurríki, Sviss og á Ítalíu í beinu flugi.
Eitt er þó svo undarlegt að í auglýstum skíðaferðum allra innlendra ferðaskrifstofa nema hjá Heimsferðum og Bændaferðum er akstur til og frá skíðasvæðunum ekki innifalið í auglýstu verði.
Einhverjum kann að finnast það lítið mál og aumkunarvert en ritstjórn Fararheill ekki. Sérstaklega þar sem aukakostnaður vegna slíks getur skipt tugum þúsunda króna.
Dæmi um það eru ferðir Vita eða Úrval Útsýn til nokkurra skíðasvæða á Ítalíu.
Flogið er til Bologna en þaðan er spottakorn í viðbót á skíðasvæðin og hver einasti kjaftur þarf að punga út 8.800 krónum fram og aftur. Tveir saman í skíðaferð geta því bætt 17.600 krónum við auglýst verð ferðaskrifstofanna. Það er ekki upphæð sem meginþorri almennings hlær að.
Svipaðar upphæðir þarf að greiða til að komast á skíðasvæðin í Klettafjöllum í Bandaríkjunum með GB ferðum, Vita eða Icelandair. Ætli fólk sér alla leið til Vail eða Aspen eykst kostnaður töluvert í viðbót jafnvel fyrir þá sem leigja sér bílaleigubíl.






