Ætli sér einhverjir að vera á faraldsfæti í Portúgal á miðvikudaginn kemur þann 24. nóvember er sá hinum sama bent á að hafa í huga að búist er við að velflestar samgöngur á láði og legi og lofti truflist vegna verkfalls í landinu. Mun verkfallið einni hafa áhrif á flugsamgöngur deginum áður þann 23. nóvember.
Næturblámi yfir miðborg Lissabon. Mynd Soyignatius
Alls staðar er niðurskurður í Portúgal eins og hér á Fróni og eru landsmenn að mótmæla þeim skerðingum. Eru þær verri fyrir vikið sökum þess að almenningur í landinu eru almennt ekki ríkur.
Verkfallið mun hafa áhrif á alla ferðalanga sökum þess að söfn verða lokuð líka þann dag.






