Samkvæmt því sem fram hefur komið í máli forstjóra Wow Air, Skúla Mogensen, bar það mjög brátt að að félag hans yfirtók hluta reksturs samkeppnisaðilans Iceland Express. Hófust viðræður aðeins rúmri viku áður en kaupin voru tilkynnt opinberlega þann 23. október síðastliðinn.

Hvort samkeppnisyfirvöld meta það svo að yfirtaka Wow Air á sínum helsta samkeppnisaðila brjóti í bága við lög er vandi um að spá.
Að því gefnu að þar fari forstjórinn með rétt mál getur Wow Air því ekki hafa sent Samkeppniseftirlitinu tilkynningu um kaupin með mjög löngum fyrirvara. Þvert á móti er þar aðeins um þrjá til fjóra virka daga að ræða í besta falli.
Sé þetta rétt er um svokallaða styttri tilkynningu um að ræða af hálfu kaupandans en lögum samkvæmt hafa samkeppnisyfirvöld þá fimmtán virka daga til að gera athugasemdir og krefjast frekari upplýsinga. Ef við gefum okkur að á miðvikudeginum 17. október hafi kaupin verið frágengin og Skúli sent tilkynningu samdægurs þarf Samkeppniseftirlitið að gera athugasemdir fyrir 8.nóvember eða strax í næstu viku. Ellegar er samruninn gildur.
Er samruninn góður fyrir ferðaglaða Frónbúa?
Sitt sýnist hverjum um það. Auðvitað veltur það mikið á rekstrarforsendum og framtíðarsýn forstjóra og eiganda Wow Air. Iceland Express var helsti keppinautur Wow og það eru engin ný sannindi að aðeins gegnsæ og virk samkeppni heldur verði niðri og fyrirtækjum á tánum.
Auðvitað er önnur og hörð samkeppni annars staðar frá. Þeim fjölgar statt og stöðugt erlendum flugfélögum sem hingað fljúga reglulega og bíta auðvitað stóran bita frá þeim innlendu. Það eitt og sér mun þýða að Wow getur ekki hækkað fargjöld alveg eftir hentisemi.
Einhverjir hafa líkt þessu við ef Húsasmiðjan færi nú yfir um og Byko keypti upp leifarnar. Þar á bæ, eins og hjá Wow Air og öllum öðrum fyrirtækjum, er hagnaður og helst aukinn hagnaður númer eitt, tvö og þrjú. Og hvernig fara menn að því að auka sífellt hagnað í 300 þúsund manna landi? Í þessum samanburði gleymist þó að helsti markaður Wow Air er erlendis og því ekki alveg saman að jafna.
Í öllu falli hefur Wow Air þegar smurt töluvert ofan á hefðbundin fargjöld sín nú þegar. Í ágústlok varð félagið hið fyrsta til að taka sérstakt gjald fyrir allan farangur sem fólk ferðast með og nýlega hækkaði félagið sérstakt bókunargjald sitt verulega. Þannig greiðir hver farþegi nú 3.800 krónur aukalega ofan á fargjaldið sjálft hvern einasta fluglegg eða 7.600 krónur fram og tilbaka þvælist sá um með eina einustu tösku. Þegar fargjöld undanfarin ár hafa oft fengist frá 15 til 20 þúsund aðra leið út eru tæpar átta þúsund krónur sannarlega farnar að telja. Og telja auðvitað beint ofan í vasa Wow Air.
Þó Pálmi Haraldsson, fyrrum eigandi Iceland Express, hafi gortað af því að félag hans hafi verið í fararbroddi að lækka flugfargjöld á Íslandi er hægt að vissu leyti að taka undir það. En það gilti aðeins um þær flugleiðir þar sem Iceland Express var í samkeppni við Icelandair. Þar sem Iceland Express var einrátt kostaði farið oft á tíðum mun meira en sambærilegar leiðir Icelandair. Og Icelandair verður seint talið lággjaldaflugfélag eins og Iceland Express og Wow Air telja sig vera.
Líkurnar á riftun?
Fararheill hefur leitað álits nokkurra lögfræðinga vegna málsins en undarlegt nokk hafa þeir lítið vilja tjá sig eða fabúlera um hugsanlega niðurstöðu málsins.
Sautjánda grein samkeppnislaga er svohljóðandi:
Telji Samkeppniseftirlitið að samruni hindri virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða eins eða fleiri fyrirtækja verði til eða slík staða styrkist, eða verði til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti, getur stofnunin ógilt samruna. Jafnframt skal við mat á lögmæti samruna taka tillit til tækni- og efnahagsframfara að því tilskildu að þær séu neytendum til hagsbóta og hindri ekki samkeppni. Samkeppniseftirlitið getur einnig sett slíkum samruna skilyrði sem verður að uppfylla innan tilskilins tíma. Við mat á lögmæti samruna skal Samkeppniseftirlitið taka tillit til þess að hvaða marki alþjóðleg samkeppni hefur áhrif á samkeppnisstöðu hins sameinaða fyrirtækis. Enn fremur skal við mat á lögmæti samruna taka tillit til þess hvort markaður er opinn eða aðgangur að honum er hindraður.
Að mati ritstjórnar Fararheill, sem er þó engan veginn útlærð í flugútgerðarbransanum, leikur enginn vafi á að yfirtaka Wow á Iceland Express takmarkar samkeppni. Það segir sig sjálft. Líkurnar á að Wow Air nýti sér það þegar fram líða stundir verða að teljast töluverðar enda eigandinn ekki orðið vellauðugur fyrir tilviljun. Þá hefur hann og sjálfur tekið við stjórn á félaginu og það eitt og sér gefur ákveðnar vísbendingar.
Að sama skapi er ekki endilega víst að ógilding verði nokkuð til góða heldur. Fram hefur komið að Iceland Express blæddi peningum og hvorki eigandi né forstjóri þess sáu mikið til sólar næstu misserin. Engum datt í hug að byggja nýtt Titanic í áratugi eftir að sá dallur sökk. Sama gildir um Pálma og Iceland Express jafnvel þó hann eigi fjármunina til sem margir efast um lengur.
Við metum það svo að samruninn eða kaupin gangi í gegn. Hugsanlega með einhverjum skilyrðum sem stofnunin verður svo ekki í stakk búin til að fylgjast með í framtíðinni sökum manneklu.






