Heimurinn er skrýtinn og skemmtilegur oftast nær. Sérstaklega er skemmtilegt, eða ekki, að komast að því að nótt á herbergiskytru á besta „allt innifalið“ hóteli Evrópu fjögur ár í röð kostar svipað og nótt á gistiheimilinu Bjarnargerði á Norðurlandi.

Sjö daga dvöl í desember á besta allt innifalið hóteli Evrópu í Antalya fékkst ódýrust á rúmar 78 þúsund krónur á hótelleitarvél Fararheill. Það er lægra verð en finnst hjá 99 prósent þeirra íslensku aðila sem gistingu bjóða og í Tyrklandinu er auðvitað matur og drykkur innifalinn í verðinu.
Er þar reyndar miðað við nótt í desember sem seint telst til háannatíma en engu að síður fæst herbergi með engu í Bjarnargerði ódýrast á 9.874 krónur 12. til 13. desember næstkomandi.
Berum það saman við nótt á sömu dagsetningum í tveggja manna herbergi með öllu inniföldu fyrir báða á hinu fimm stjörnu Concorde de Luxe í Antalya í Tyrklandi. Verðið samkvæmt leit á hótelvef Fararheill, Hotelscombined, á miðnætti þann 30. október 2012: 11.086 krónur með sköttum.
Ritstjórn Fararheill er ekki ein um að finnast verðlagning á gistingu hérlendis út úr lélegu korti og kannski gefur þetta örlitla mynd af ruglinu. Þó er gistiheimilið Bjarnargerði með þeim allra ódýrustu gististöðum sem finnast á Fróni.
Svarið við þessu er auðvitað að ferðast ekki innanlands heldur nýta sér fremur tilboð flugfélaganna og fara sínar eigin leiðir. Ítrekað hafa kannanir sýnt undanfarin ár að ferðalög innanlands eru hreint ekki ódýrari kostur fyrir fjölskyldur en utanlandsferðir og er þá miðað við verð hjá innlendum ferðaskrifstofum. Sem Fararheill hefur ítrekað bent á að eru almennt mun dýrari en gerist og gengur í nágrannalöndunum.
Í öllu falli er vert að minnast á Concorde de Luxe því hótelið er margverðlaunað af hálfu World Travel Awards þar sem það hefur sigrað fjórum sinnum sem besta allt innifalið hótelið og sömuleiðis fjórum sinnum besta allt innifalið hótel Tyrklands.
Það hefur komið fyrir að ferðaskrifstofurnar hérlendis bjóði ferðir til Antalya á sumrin og næst þegar slíkt býðst er ráð að kanna hvort ekki fæst aðeins flugið og koma sér svo þægilega ódýrt fyrir á þessu ágæta hóteli.
Heimasíða Concorde de Luxe hér.






