Pistlar

Hvar er heilbrigða skynsemin?

  01/11/2012No Comments

Ótrúlegasta fólk er farið að æsa sig yfir formlegheitum þessa síðustu og verstu. Nú snúast deilurnar um hvort Wow Air sé flugfélag eða flugrekandi.

Formlegheitin farin að vefjast fyrir mönnum úti í þjóðfélaginu okkar. Enda bráðvantar líka þjóðfélagið fleiri deiluefni en verið hefur.

Ýmsir hafa lagt orð í belg. Forstjóri Wow kallar félag sitt flugfélag. Flugmálastofnun kallar Wow flugrekanda og sömuleiðis Félag íslenskra atvinnuflugmanna sem gengur lengra og kallar Wow Air gerviflugfélag. Meira að segja Jónas Kristjánsson bloggmaestro skammast yfir fjölmiðlum fyrir að ganga ekki úr skugga um hvort er.

Alltaf gaman er gera úlfalda úr mýflugu en kjánalegri verða deilurnar ekki.

Wow Air er ekki fremur flugfélag en ferðaskrifstofan Heimsferðir. Ekki fremur en Iceland Express og ekkert frekar en íbúðarleigjandi verður ekki íbúðaeigandi sísona þótt hann borgi hita og rafmagn.

En þetta skiptir barasta engu máli.

Öllu máli skiptir hins vegar að Wow Air ber ábyrgð á þeim vélum sem þeir leigja eins og allir bera ábyrgð á öllu sem þeir taka á leigu. Sömuleiðis bera þeir fulla ábyrgð á farþegum með leiguvélum sínum ekkert síður en raunverulegt flugfélag sem kaupir vélar sínar í stað þess að leigja .

Þegar upp er staðið er það aðalmálið.