Borgaryfirvöld í Berlín eru í herferð gegn þeim húseigendum sem leigja út eignir sínar til lengri eða skemmri tíma til ferðafólks. Séu slíkar eignir ekki skráðar sérstaklega gæti leigjandi verið á götunni áður en hann getur sagt scheiβe.

Svo margir leigja íbúðir sínar ólöglega í Berlín að til vandræða horfir.
Borgaryfirvöld í borginni þýsku eru í bullandi vandræðum. Á aðeins rúmum tíu árum hefur ferðamannafjöldi til borgarinnar tvöfaldast. Sem er jákvætt fyrir borgarsjóð og fyrirtæki í borginni. Neikvætt hins vegar gagnvart fjölda íbúa sem telja fyrir löngu nóg komið.
Ástæðurnar nokkrar og þar á meðal síhækkandi fasteignaverð í borginni sem er meðal annars afleiðing af því að fjárfestar sjá mikil tækifæri til að kaupa upp heilu blokkirnar og breyta í hótel og gistihús. En ekki síður vegna þeirra einstaklinga sem leigja út hús og híbýli gegnum íbúðaleigur og netauglýsingar.
Fyrir utan að gera verður úttekt á húsnæði sem leigja á utanaðkomandi af hálfu eftirlitsaðila fer fyrir brjóst margra að sjá hópa af ferðafólki á vappinu um gróin íbúðahverfi hvenær sem er sólarhringsins.
Nú hafa borgaryfirvöld gert út tíu manna hóp eftirlitsmanna sem gera leit að þeim íbúðum sem í útleigu eru og sekta eigendur ef slíkt er gert leyfislaust. Því án þess að hafa yfirsýn er erfitt að gera eitthvað í málinu. Gallinn sá að finnist ferðafólk í leyfislausum íbúðum kemur fyrir að þeim er gert að yfirgefa staðinn samstundis að því er fram kemur í Deutsche Welle.
Því ráð sé ætlunin að leigja íbúð eða fasteign í Berlín gegnum íbúðaleigur að ganga úr skugga um að öll leyfi séu fyrir hendi. Fúlt að enda ferðina til Berlínar út á götu með tilheyrandi veseni.







