Hugmyndin er ekki að gera lítið úr flugleitarfyrirtækinu Dohop en getur það verið góð hugmynd fyrir fyrirtækið að leggja lag sitt við eitt ákveðið flugfélag?

Samstarf um „læk“ milli Dohop og Wow Air.

Samstarf um „læk“ milli Dohop og Wow Air.

Á samfélagsmiðlum má lesa um „samstarf“ Dohop og Wow Air sem felst í því að allir þeir sem „læka“ fésbókarvefi hvors fyrirtækis fyrir sig geti unnið ferð til San Francisco í verðlaun. Verðlaun sem sögð eru 155 þúsund króna virði.

Sem er tóm steypa. Skoðun á vef Wow Air leiðir í ljós að sáraeinfalt er að fljúga til og frá San Francisco í allt sumar fyrir um hundrað þúsund krónur eða svo. Það er því tóm lygi að „verðlaunin“ séu svo mikils virði.

En auðvitað virkar svona prógramm. Íslendingar eru „suckers“ fyrir gylliboðum á netinu og gildir þá einu hversu langsótt er að hreppa stóra vinninginn.

Wow Air fær fleiri læk og fleiri vini og líklega fjölgar vinum Dohop líka. En mikið setur Dohop niður að okkar áliti. Hvað vitum við nema bak við tjöldin sé líka verið að makka um að plögga flugferðum Wow Air ofarlega á lista Dohop? Annað eins hefur nú gerst á ófarsæla Fróni. Getum við tekið flugleitarvél alvarlega sem er í krulli við eitt ákveðið flugfélag?

Varla!

PS: verðlaunin er ferð fyrir EINN einstakling. Var ekki lágmark að punga í ferð fyrir tvo?