Hljótt hefur farið um það en bandarísk stjórnvöld hafa nú ítrekað viðvörun sína til allra ferðamanna sem eru á leið til Bretlands. Er talin veruleg hætta á hryðjuverkaárás í landinu og þá sérstaklega tiltekið að samgöngutæki hvers konar séu í sérstakri hættu. Er þar fyrst og fremst verið að meina lestar, strætisvagna, flugvélar og önnur slík samgöngutæki.
Raunar gaf innanríkisráðuneytið bandaríska út almenna aðvörun í ágúst síðastliðnum en ítrekar nú aðvörun sína enda telur ráðuneytið að enn sé veruleg hætta á hryðjuverkum og þar sé Bretland ofarlega á lista.
Þó Kaninn sé alla jafna taugaveiklaðri en flestir aðrir er full ástæða til að hafa varann á sér í stærri borgum Bretlands.
Sjá grein Bloomberg um málið hér.






