Útlitið skiptir engu máli! Eða næstum engu máli hvað viðkemur flugþjónum samkvæmt nýrri breskri skoðanakönnun.
Voru ferðalangar spurðir út í mikilvægi útlits flugþjóna auk annarra spurninga um þjónustu um borð í farþegavélum. 88 prósent segja að útlit fólks skipti ekki máli og flugfélög eigi ekki að ráða flugþjóna eftir útliti.
Ritstjórn Fararheill.is hefur áður fjallað um mikilvægi þess að flugþjónar sýni meira en yfirborðskurteisi sem er ansi hreint algengt hjá hinum íslensku. Og samkvæmt sömu könnun sem flugmiðilinn Jetcost stóð fyrir og veitir sérstök verðlaun fyrir skiptir þjónusta ótrúlega marga máli.
Og það eru flugþjónar Virgin Atlantic sem sýna mesta fagmennsku og yndislegheit samkvæmt könnuninni meðan flugþjónar lágfargjaldafélagsins Ryanair þykja manna verstir
En þó könnun þessi sem náði til tvö þúsund ferðamanna sýni að flugfélög eigi ekki að láta útlit ráða við ráðningu flugþjóna reyndust 57 prósent aðspurðra á því að flugþjónar þyrftu að vera í myndarlegri kantinum. Það væri mikilvægt út á við fyrir flugfélagið meðan aðrir vildu meina, og sérstaklega karlmenn, að myndarlegt fólk um borð gerði flugið mun yndislegra en ella.






