Öllu meira hefur farið fyrir umfjöllun um komandi Ólympíuleika í London í Englandi í fjölmiðlum en Evrópumótið í knattspyrnu sem fram fer í Póllandi og Úkraínu. Fullyrt skal hér að mun fleiri Frónbúar hafa áhuga að sjá Þýskaland mæta Spáni í knattspyrnu en hafa áhuga að sjá Usain Bolt slá enn eitt heimsmetið í hundrað metra hlaupi.

Poznan er ein þeirra borga þar sem leikið er á EM

Poznan er ein þeirra borga þar sem leikið er á EM

Það segja þeir sem prófað hafa að það sé lífsreynsla að upplifa Evrópukeppni í knattspyrnu. Gildir þá einu hvort viðkomandi hafa nokkru sinni komist á nokkra leiki því það er ekki síst stemmningin sem keppninni fylgir sem er svo æði heillandi.

Samanborið við dýra London og aukinn troðning í þegar troðfullri borg er sennilega lífsreynslulega séð meira gaman að þvælast um í Póllandi eða Úkraínu og kynnast boltastemmningu auk þess sem bæði Pólland og Úkraínu eru almennt töluvert ódýrari lönd að heimsækja en England.

Ekki síst á það við nú þegar allnokkur flugfélög fljúga héðan beint til Póllands. Með góðum fyrirvara er hægt að negla flugmiða fram og tilbaka á rétt rúmar 20 þúsund krónur með Wow Air, Iceland Express eða Icelandair.

Reyndar getur verið erfitt að verða sér úti um miða á leiki í keppninni en þeir eru seldir á vef Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, en reynandi er að hafa samband við Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, sem getur haft milligöngu um miðakaup sé það gert með fyrirvara.

Borgirnar fjórar sem leikið verður í eru allar skemmtilegar heimsóknar burtséð frá boltanum og getur ritstjórn heils hugar mælt með fríi í Póllandi þar sem er almennur uppgangur og reyndar eina landið í Evrópu þar sem hagvöxtur fór ekki niður á við í efnahagslægðinni 2008. Þar er verðlag aukinheldur tiltölulega gott á evrópskan mælikvarða kjósi menn að fata sig upp eða veita sér vel í mat og drykk. Allt um slíkt auk fjölda annarra upplýsinga má finna á leiðarvísum Fararheill sem vísað er til hér að neðan.

Í Varsjá verður hægt að fylgjast með Póllandi, Rússlandi og Grikklandi keppa sín á milli auk minnst eins leikja í fjórðungsúrslitum keppninnar. Þeir leikir fara fram 8., 12., 16. og 21. júní.

Í Poznan verður hægt að fylgjast með Írlandi, Ítalíu og Króatíu eigast við 10., 14. og 18. júní.

Í Wroclaw munu etja kappi Rússland, Tékkland og Grikkland dagana 8., 12. og 16. júní.

Í Gdansk hins vegar mæta til leiks Spánn, Ítalía og Írland 10., 14. og 18. júní auk þess sem þar fer einnig fram einn leikur í fjórðungsúrslitum þann 22. júní.