Ólafur Ragnar „skítlegt eðli“ Grímsson hefur aldrei haft puttann á púlsinum þó honum takist að blekkja vitgranna Íslendinga reglulega. Karlinn heldur sínu striki nú og veitti nýlega Icelandair sérstök útflutningsverðlaun forseta Íslands.

Verðlaun já…
Sem er merkilegt fyrir margra hluta sakir. Meðal annars:
♥ Flugfélagið þurfti ríkisaðstoð til að koma í veg fyrir langvarandi verkföll þar sem fyrirtækið vildi ekki greiða þau laun sem flugmenn töldu sig þurfa.
♥ Flugfélagið tekur nú rúman mánuð að aðstoða farþega sína og viðskiptavini ef eitthvað bjátar á. Sá tími lengst úr tveimur til þremur dögum á þremur árum eða svo.
♥ Flugfélagið greiðir út góðan arð ár hvert þrátt fyrir að fljúga einhverjum elstu vélum í Evrópu og brýn þörf sé á endurnýjun flotans.
♥ Forstjóri þess vill frekar byggja bílastæði og hafa bílastæðisvörð við allar helstu náttúruperlur landsins en að hækka gistináttaskatt um eina evru.
♥ Forstjóri þess vill ekki sjá að þeir lægst launuðustu í þjóðfélaginu fái meira en örfáa hundrað kalla í launaumslagið í nýjum samningum.
♥ Stjórnarformaður flugfélagsins var rekinn frá öllu stærra flugfélagi fyrir misferli í starfi.
♥ Fyrirtækið hundsar ár eftir ár reglur um aðstoð og bætur til handa farþegum ef til seinkana eða niðurfellingar flugs kemur.
♥ Samkvæmt vef flugvefsins Skytrax hefur meðaleinkunn Icelandair farið snarlækkandi fyrir þjónustu og liðlegheit á síðustu þremur árum.
♥ Enginn flytur fleiri ferðamenn til landsins en tekur ekki á nokkurn einasta hátt þátt í að vernda sömu náttúru og flugfélagið er að selja eins og heitar lummur.
♥ Verðlag á flugferðum hefur hækkað um tugi prósenta þrátt fyrir að flugvélabensín hafi lækkað um helming á síðasta ári.
♥ Dótturfyrirtæki Icelandair, Flugfélagi Íslands, hefur tekist að fækka flugfarþegum innanlands um 200 þúsund á skömmum tíma. Hvers vegna ætli það sé…
Hljómar ofangreint eins og ávísun á sérstök verðlaun? Það væri nú betra að okkar mati ef forsetinn okkar setti nú haus aðeins í bleyti áður en hann hendir út medalíum eins og ódýrum brjóstsykri.







