Lengi vel hefur ritstjórn Fararheill gagnrýnt það sjoppuúrval sem í boði er hjá stærri ferðaskrifstofum landsins og á stundum hlotið bágt fyrir. Við svo neikvæð er viðkvæðið. En við erum sennilega ekki þau einu sem vilja meiri breidd og úrval ferða.

Þetta er raunin í afar mörgum sérferðum minni ferðaskrifstofanna. Allt uppselt. Skjáskot

Þetta er raunin í afar mörgum sérferðum minni ferðaskrifstofanna. Allt uppselt. Skjáskot

Það byggjum við á tvennu. Annars vegar að þeim fjölgar nánast daglega innlendum ferðaskrifstofum sem einmitt bjóða eitthvað aðeins öðruvísi. Fjöldi fyrirtækja sem bjóða skipulagðar ferðir héðan skjagar í 40 talsins sem er makalaust mikill fjöldi. Hins vegar hversu vel sala gengur á safaríkum sérferðum hjá aðilum á borð við Bændaferðum og Trans-Atlantic. Báðir fara nokkuð sínar eigin leiðir í ferðaúrvali og hjá báðum er eftirspurn og sala góð.

Það má til dæmis sannreyna á vef Bændaferða. Einu gildir hvaða ferð er þar flett upp að í mörgum tilfellum er algjörlega uppselt og í öðrum aðeins tvö til fjögur sæti eftir. Og þetta ekki ódýrustu ferðirnar heldur.

Á sama tíma hefur fólk vart undan að lesa sértilboð um lækkað verð á sólarferðum hjá stóru ferðaskrifstofunum en óvenju mikið hefur verið um afsláttarkjör þetta vorið að mati Fararheill.

Gott mál. Ferðalög víkka sjóndeildarhringinn en þó aðeins sé ekki alltaf haldið á nákvæmlega sama staðinn. Meira svona takk 🙂