Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn hefur fellt niður allar fyrirhugaðar ferðir sínar til Portúgal seinni hluta sumars sökum dræmrar þáttöku. Er þetta enn einn ásteytingarsteinninn í götu fyrirtækisins sem hefur sitt barr vart borið síðan bankahrunið varð í nóvember 2008.

Dræm þátttaka til Portúgal og ferðir felldar niður fyrirvaralaust

Dræm þátttaka til Portúgal og ferðir felldar niður fyrirvaralaust

Segja heimildamenn Fararheill.is að þessi gamalgróna ferðaskrifstofa væri fyrir nokkru komin undir moldu ef eignarhaldsfyrirtæki Iceland Express hefði ekki keypt það í heilu lagi í byrjun árs. Í ljós á eftir að koma hvort flugfélagið getur rétt hag þess við enda fátt sem bendir til þess að landsmenn leggi erlend lönd undir fót næstu misserin.

Athygli vekur að engar tilkynningar um niðurfellingu ferðanna er að finna á vefum ferðaskrifstofunnar. Hvorki á heimasíðu þeirra né facebook síðu þeirra. Enn eitt dæmið um skort á þjónustu við viðskiptavini.