Það er bara yndislegt þá sjaldan forráðamenn innlendra ferðaskrifstofa leggja haus í bleyti og koma upp með nýjungar aðrar en næsta bæ við Benídorm. Vinsældir þáttar Egils Helgasonar um Nýja-Ísland vöktu menn hjá Úrval Útsýn úr svefni og þessi ágæti sjónvarpsmaður mun leiða hóp bæði til Winnipeg í Kanada og til grísku eyjanna næsta sumarið fyrir hönd ÚÚ.

Undarlegasti innriklefi sem við höfum séð. Skjáskot
Engum blöðum er um að fletta að Egill er fyrsta flokks leiðsögumaður þær tvær ferðir sem um ræðir enda með þekkingu og reynslu af báðum stöðum. Þá er karlinn líka temmilega léttur á því almennt, tekur lífið ekki of alvarlega og á efalítið eftir að henda út alls ótengdum sögum úr reynslubankanum í ferðum sínum.
Eins og Fararheill hefur skrifað um áður á þessi umrædda ferðaskrifstofa það til að leggja helst til mikið ofan á ferðir margar og þess vegna kíktum við á hvort við gætum gert betur en ferðaskrifstofan varðandi Grikklandsferðina.
Sú samanstendur af ljúfri siglingu frá Róm til Napolí áður en siglt er áfram til eyjanna í Miðjarðarhafinu. Stoppað er á Krít, Rhodos, Ionia og Santorini áður en fólkinu er landað í Aþenu. Ekki nokkur skapaður hlutur að slíkri ferð. Dallurinn heldur enginn rússneskur togari. Emerald Princess er toppdallur í alla staði og þar allt mögulegt í boði til afþreyingar.
Lágmarksverð á ferðinni sem hefst 11. júní og stendur til 23. júní er 839.800 krónur og miðast við tvo í innriklefa. Merkilegt nokk virðist innriklefi hjá Úrval Útsýn vera klefi með bæði útsýni og svölum ef marka má meðfylgjandi mynd. Í byrjun ferðar er dvalist tvær nætur í Róm og þrjár nætur í Aþenu í blálokin. Millilent er í Kaupmannahöfn báðar leiðir og nokkur bið á flugvellinum. Inn í verðið vantar tæplega 20 þúsund króna þjórfé í skipinu.
Þessa sömu ferð er hægt að fara á eigin spýtur samkvæmt okkar útreikningum fyrir alls 525 þúsund krónur fyrir tvo. Gist á sams konar hótelum, flogið með sömu eða svipuðum vélum sömu daga og sama sigling í innriklefa. En þá er enginn Egill.
Spurningin er því hvort Egill sé nógu skemmtilegur eða fróður að þínu mati til að punga út rúmlega þrjú hundruð þúsund krónum aukalega fyrir tólf nátta ferð.
Við bókum flugið út til Köben með Wow Air eða Icelandair þann 11. júní og heim aftur þann 23. júní. Frá Köben fljúgum við með Norwegian til Rómar og líka með Norwegian frá Aþenu til Köben. Bókum innrikáetu gegnum vef skipafélagsins og hótel finnum við hræódýrt á báðum stöðum þennan tíma gegnum okkar eigin hótelbókunarvél.
[/vc_message]






