Tíðindi

Uppleið hjá Wow Air en betur má ef duga skal

  29/10/2014október 31st, 2014No Comments

Gleðitímar fara í hönd fyrir öll okkar sem elskum ferðalög og þvæling um heimsins horn eins oft og framast er unnt. Áfangastöðum héðan fjölgar ótt og títt og allra best að samkeppni eykst hröðum skrefum sem þýðir lægri fargjöld. Hvergi er þetta meira áberandi en hjá Wow Air.

Ýmis tilboð Wow Air næstu misseri. Skrambi gott bara. Skjáskot

Ýmis tilboð Wow Air næstu misseri. Skrambi gott bara. Skjáskot

Flugfélagið atarna var komið með orð á sér fyrir ekki svo löngu að vera engan veginn það lággjaldaflugfélag sem lagt var upp með í byrjun. Fram að síðasta sumri skjöguðu mörg fargjöld Wow Air oft á tíðum vel upp í fargjöld Icelandair á sömu staði og í samanburði við önnur lággjaldaflugfélög voru fargjöld Wow Air út í hróa oft á tíðum eins og verðkannanir Fararheill sýndu ítrekað síðasta vetur og vor.

Wow Air klúðraði sem sagt tækifærinu að bjóða strax vel, nýta þann meðbyr sem félagið hafði í upphafi og ná til dæmis markaðinum sem Iceland Express skildi eftir en það fyrirtæki, þrátt fyrir slæmt orðspor, var um tíma með tæplega 50 prósent hlutdeild í ferðum milli Keflavíkur og London svo eitthvað sé nefnt. Gaf erlendum lággjaldaflugfélögum á borð við easyJet færi að rúlla upp markaðnum sem hið breska flugfélag er einmitt smátt og smátt að gera.

Það þurfti til dæmis spark frá easyJet í byrjun júlí þegar tilkynnt var um fjölgun ferða og áfangastaða breska flugfélagsins til að forráðamenn Wow Air tækju upp á því að bjóða fargjöld undir tíu þúsund krónum reglulega. Það hafði flugfélagið næsta alveg látið vera nánast frá upphafi. Síðdegis daginn sem sú tilkynning easyJet var opinberuð bauð Wow Air loks flug til London aðra leið undir tíu þúsund og það hefur flugfélagið gert reglulega síðan. Sjá má við skoðun á ferðaáætlun Wow Air vel út næsta ár að þau fargjöld eru áfram í boði.

Það er vel og gott fyrir þessa ferðaglöðu neytendur. Lág fargjöld gera okkur enn betur kleift að verða okkur úti um sérdeilis fyrirtaks ferðapakka erlendis. Wow Air þarf þó reyndar að gera enn betur og gæta sín á öllum þessum aukagjöldum sem fara sífellt meira í taugar fólks fyrir utan sífellt minna pláss um borð. Það er jú ótrúlega lítill munur á fargjaldi Wow Air til London eða Kaupmannahafnar þegar aukagjöldum er bætt við og svo flugi með Icelandair svo dæmi sé tekið þar sem flest er innifalið.

Dæmi um það er flug aðra leið til Kaupmannahafnar í mars á næsta ári. Þó flugið eitt og sér kosti aðeins 10.498 krónur hjá Wow Air komast aðeins nærur og tannbursti með í fimm kílógramma handtösku. Virkar fínt í skemmri borgarferðir og viðskiptatúra en ætli fólk að dvelja eitthvern tíma nú eða versla er ódýrara að fljúga með Icelandair sem býður sama flug á 15.880 krónur og 20 kílóa farangursheimild innifalin plús handfarangur. Ætli fólk með Wow Air og greiða bæði handfarangursgjald og töskugjald kostar önnur leiðin með Wow Air 16.496 krónur eða 616 krónum meira að lágmarki.

Fátt „lággjalda“ við það.