Fararheill hefur um hríð vaktað fréttatilkynningar allnokkurra erlendra bílaleiga í því skyni að finna út hvort einhver einn aðili sé oftar að bjóða betur en aðrir. Þar standa nokkrir sig betur en aðrir en aldrei höfum við áður séð dagsleigu á litlum bílaleigubíl niður í 590 krónur eins og í boði er nú.
Það tilboð gildir reyndar aðeins um bíla á Spáni og þá aðeins á tilteknum dögum í nóvember. Í þessu ákveðna tilfelli er þó verið að bjóða stórkostlegt verð því ekki má gleyma að bílaleiga er hvergi ódýrari en á Spáni almennt og þar oft hægt að leigja fínustu tíkur niður í 1600 til 2000 krónur á sólarhring.
En bíll í sólarhring niður í sex hundruð krónur er lítið annað en argasta grín. Fært yfir á mánaðarbasa þýðir þetta bíl í þann tíma fyrir 18 þúsund krónur!!!
Það er breska bílaleigan Mycarrental sem þetta er að bjóða þessa stundina en jafnvel þó ekki sé á dagskránni rúntur um spænsk héruð í nóvember þykir okkur sýnt að þessi sami aðili er almennt að bjóða einna besta verð á bílaleigubílum punktur.
Kannski óvitlaust að setja í bókamerki ef ætlunin er að nota bíl á Íberíuskaganum á næstunni. Sami aðili er nefninlega líka að bjóða bíla í Portúgal og lægsta verð þar per dag kringum 1400 krónur.







