Icelandair býður Kanadamönnum nú ferðir yfir Atlantshafið á sértilboðskjörum eða frá 29 þúsund krónum báðar leiðir. Um 48 tíma tilboð er að ræða en það sem vekur athygli er að ekkert slíkt hefur staðið Íslendingum til boða né heldur er þeim er taka tilboðinu boðið að fljúga eingöngu til Íslands.
Vissulega hefur fyrirtækið boðið tilboðsferðir frá Íslandi gegnum tíðina, meðal annars styttri helgarferðir til Boston eða New York. Síðustu slíku tilboðin til Íslendinga sem þurfa óendanlega meira á slíku að halda kostuðu þó ekki undir 50 þúsundum króna og er þó flug til Boston og Keflavíkur töluvert styttra en frá Toronto til Stokkhólms eða Frankfurt eins og Kanadamönnum býðst nú.
Þá vekur og athygli að áfangastaðurinn Ísland er ekki í boði á tilboðsverðinu. Lítill áhugi Icelandair að koma gjaldeyri inn í landið virðist vera.
Tilboðið:
From $229* Round-Trip
Check out these incredibly low round-trip fares to Europe. But act now. These fares are only good for 72 hours!
August 26 – 28
Toronto and Halifax to:
London from $229*
Glasgow from $229*
Manchester from $229*
Amsterdam from $277*
Frankfurt from $277*
Paris from $277*
Copenhagen from $289*
Oslo from $289*
Stockholm from $289*
Valid for outbound travel: Halifax September 14 – October 22, 2009 and Toronto September 14 – September 20, 2009
Minimum Stay: Saturday Night
Maximum Stay: 90 days
Change Fee: $275*
Nonrefundable
Fuel and taxes not included.






