Við eigum sennilega öll svona gamla „vini” sem okkur þykir vænt um en eru samt allssendis glataðir einstaklingar sem ljúga, svíkja og pretta við hvert tækifæri þrátt fyrir loforð um betrun í hvert sinn sem upp kemst. Við gefum þeim endalaus tækifæri en allt kemur fyrir ekki…
Flugfélagið Icelandair er dálítið svoleis á samfélagsmiðlum. Lofa bót og betrun árum saman í nánast hverju einasta svarskeyti frá fúlum viðskiptavinum en þegar á hólm er komið fellur allt í sama fúla skítapyttinn.
Eða hvað skal halda um flugfélag sem svarar ósáttum viðskiptavini ÞRETTÁN DÖGUM eftir ósk um aðstoð á samfélagsmiðlum? Það er líklega fljótlegra að senda handskrifað bréf með bréfdúfu til Icelandair og fá aðstoð þannig en að nota nútímatækni. Og hér um að ræða fyrirtæki sem hefur reitt sig á feita ríkisaðstoð um margra ára skeið.
Ítrekum enn og aftur, sjötta árið í röð, að skipta þarf um alla yfirstjórn Icelandair ekki seinna en í gær. Og við haft rétt fyrir okkur hingað til ef marka má opinbert bókhaldið. Við ættum kannski að sækja um…







